Þú ert hér: Heim Fréttir Þjálfunarstjóri/yfirtendrun
Þjálfunarstjóri/yfirtendrun Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson   
Laugardagur, 22. maí 2010 23:18

Dagana 17-19. maí s.l. hélt Brunamálastofnun námskeiðið "þjálfunarstjóri/yfirtendrun" á gamla varnarliðssvæðinu í Reykjanesbæ, en ellefu slökkviliðsmenn frá níu slökkviliðum sátu námskeiðið og var greinarhöfundur þar á meðal.

Á námskeiðinu sem var bæði bóklegt og verklegt var farið í almenna þjálfunarstjórn þar sem mönnum var kennt að setja upp æfingar og þjálfa/kenna sínum mönnum, jafnt nýliðum sem lengra komnum með því markmiði að viðhalda og auka þekkingu þeirra á starfi í slökviliði og einnig að undirbúa þá fyrir frekara nám í Brunamálaskólanum.

 

Í verklega hlutanum var svo farið í "yfirtendrunargáminn" sem staðsettur var á æfingasvæði Brunavarna Suðurnesja, en þar fá menn að sjá þróun eldsvoða, allt frá byrjun að mörkum yfirtendrunar.   Kennd er umgengni við gáminn þ.e. allt frá því hvernig skal stilla upp hinu brennanlega efni svo að við fáum sem mest út úr brunanum og síðan hvernig  ráðast skal að eldinum.

Kenndar voru verklagsreglur við æfingar í yfirtendrun og farið í hvað má og má ekki gera þegar stjórnadi er með hóp manna á jafn krefjandi og hættulegri æfingu eins og yfirtendrunargámurinn er.

Námskeiðið tókst í alla staði vel og var bæði fróðlegt og skemmtilegt enda kennararnir ekki af verri endanum, þeir Pétur og Benni frá Brunamálastofnun og Oddur, Guðmundur og Þórður frá Slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins.(myndir)