| Annasamur mánuður |
|
|
|
| Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson |
| Laugardagur, 22. maí 2010 21:50 |
|
Íslenska gámafélagið óskaði þrisvar sinnum eftir aðstoð við að dæla vatni í rotþrær sem þeir voru að vinna við, þá voru einnig farnar tvær ferðir inn í Herjólfsdal þar sem verið var að laga og tyrfa tjaldstæði og var svæðið vökvað. Þann 8. maí var svo beðið um reykræstingu í einbýlishús en þar hafði barn verið að leik með eldfæri með þeim afleiðingum að kvinaði í, höfðu húsráðendur sjálfir náð að slökkva eldin en rækræsta þurfi húsið. Föstudaginn 14. maí fengum við svo að kenna á öskufallinu úr Eyjafjallajökli og varð allur bærinn udirlagður í ösku á örskömmum tíma. Strax daginn eftir var farið á tveimur bílum og hreinsað frá útidyrum á helstu stofnunum bæjarins m.a. sjúkrahúsi, dvalarheimili aldraðra og skólunum en þar gistu krakkar í hundraðatali sem voru hér á fimleikamóti. Á sunnudeginum og næstu dögum þar á eftir var svo nýja útisvæðið við íþróttamiðstöðina hreinsað ásamt skólum, leikskólum, Herjólfsafgreiðslunni og nú síðast í morgun var göngugatan spúluð. Þrátt fyrir að vel hafi gengið að þrífa ófögnuðinn af húsum og götum bæjarins er ennþá töluverð vinna eftir og næsta víst að slökkviliðið lýkur ekki "öskubusku" hlutverki sínu alveg strax.
|



Töluverður erill hefur verið hjá slökkviliðinu það sem af er þessum mánuði.