| Vetraræfingum lokið-GLEÐILEGT SUMAR |
|
|
|
| Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson |
| Laugardagur, 17. apríl 2010 20:54 |
|
Það er einna helst að menn hafi verið með hugann við gosið í Eyjafallajökli og hugsanleg áhrif þess hér í Eyjum og hefur almannavarnanefnd fundað um málið, en í dag munaði ekki miklu að öskufallið hefði náð til Heimaeyjar. Hinsvegar er gert ráð fyrir því að helgarvaktir sumarsins byrji á svipuðum tíma og undanfarin ár, eða um miðjan júní en vaktaplanið mun verða birt hér á síðunni um leið og það er tilbúið auk þess sem slökkviliðsmenn fá blað sent heim í pósti. En þangað til næst, farið vel með ykkur og GLEÐILEGT SUMAR.
|



Þá er vetraræfingunum lokið þennan veturinn hjá okkur og eins og hefur kannski sést á síðunni hafa undanfarnar vikur verið heldur tíðindalitlar hjá slökkviliðinu og má því kannski segja að í þessu tilviki séu engar fréttir góðar fréttir.