| Eldvarnagetraun 2009 |
|
|
|
| Mánudagur, 15. febrúar 2010 12:31 |
|
Laugardaginn 13. Febrúar kom til okkar á slökkvistöðina Sæþór Páll Jónsson Illugagötu 41, nemandi í Hamarsskóla til að taka við viðurkenningu fyrir þátttöku í Eldvarnaátaki sem allir 8 ára nemendur í landinu tóku þátt í nú fyrir síðustu jól. Þátttakan var mjög góð um 4000 börn tóku þátt og var rétt lausn Sæþórs dregin úr 32 réttum úrlausnum. Verðlaunin voru: Sony MP3 spilari, Reykskynjari og viðurkenningarskjal frá Landssambandi Slökkviliðs og Sjúkraflutningamanna. Það er samdóma álit þeirra sem tóku þátt í Eldvarnavikunni 2009 að hún hafi heppnast afar vel og er það mat manna að forvarnagildið sé ótvírætt.
Vestmannaeyjar 15. Febrúar 2010. Ragnar Þór Baldvinsson slökkviliðsstjóri
|



