Þú ert hér: Heim Fréttir 112-dagurinn 2010
112-dagurinn 2010 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson   
Miðvikudagur, 10. febrúar 2010 11:12

 

112-dagurinn verður haldinn víða um land fimmtudaginn 11. febrúar eins og undanfarin ár. Þema dagsins er aðkoma venjulegs fólks að vettvangi slysa, veikinda og áfalla. Viðbragðsaðilar koma sjaldnast fyrstir á vettvang slíkra atburða. Oftast kemur venjulegur borgari fyrst að, tilkynnir um atburðinn og veitir fyrstu aðstoð. Þessi fyrstu viðbrögð geta skipt miklu um afdrif fólks og hvernig til tekst með björgun. Þess vegna er mikilvægt að sem flestir kunni skyndihjálp og treysti sér til að veita hana þegar á reynir.

Af þessu tilefni verður slökkvistöðin opin frá kl. 14.00 þar sem búnaður slökkviliðsins ásamt sjúkrabílnum verður til sýnis.

 

112-dagurinn er haldinn í fjölmörgum Evrópulöndum þennan sama dag. Samstarfs-aðilar 112-dagsins á Íslandi eru 112, ríkislögreglustjórinn, Brunamálastofnun, slökkviliðin, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Rauði krossinn, Landhelgisgæslan, Barnaverndarstofa, landlæknisembættið, Landssamband slökkviliðs- og sjúkra-flutningamanna og Flugstoðir.

Dagskrá 112-dagsins er fjölbreytt að venju. 112 blaðið kemur út og kynntar verða niðurstöður Gallup-könnunar um skyndihjálparþekkingu landsmanna. Þar kemur meðal annars fram að þeir sem hafa farið á námskeið í skyndihjálp á síðustu þremur árum segjast miklu fremur en aðrir treysta sér til að hjálpa við erfiðar aðstæður. Fjöldi grunnskólabarna fær fræðslu um skyndihjálp og slysavarnir í tengslum við daginn, og viðbragðsaðilar kynna skyndihjálp, slysavarnir og fleira.

Á vef Neyðarlínunnar, 112.is, er að finna áhugavert efni fyrir börn og fullorðna sem tengist deginum. Þar er meðal annars hægt að taka próf í skyndihjálp, skoða myndasýningu og margt fleira.