Þú ert hér: Heim Fréttir Opið hús á slökkvistöðinni
Opið hús á slökkvistöðinni Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson   
Fimmtudagur, 21. janúar 2010 20:59

Laugardaginn 9. janúar s.l. var opið hús á slökkvistöðinni þar sem gestum og gangandi var boðið að koma í heimsókn og skoða tækjabúnað og húsakost liðsins.

 

Tilefnið var "Þrettándinn" sem færður var til og helgin gerð að fjölskylduhelgi, en á laugardeginum voru stofnanir bæjarins s.s. slökkvistöðin, fiskasafnið og íþróttahúsið með opið hús ásamt því að fjöldi verslana var með opið lengur.

Það er óhætt að segja að viðtökurnar hafi komið okkur skemmtilega á óvart því fyrstu gestirnir biðu við dyrnar þegar við opnuðum kl: 14.00 og má segja að slökkvistöðin hafi bókstaflega verið full af fólki þá tvo tíma sem opið var, en áætla má að allt að 500. manns hafi komið í heimsókn. (Myndir)