| Útkall-Búhamar 36 |
|
|
|
| Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson |
| Miðvikudagur, 13. janúar 2010 18:54 |
|
Þegar Slökkviliðið kom á staðinn lagði mikin reyk frá bílskúrnum og logaði talsverður eldur í húsgögnum og öðrum lausamunum sem geymdir voru í skúrnum.
Greiðlega gekk að slökkva eldinn og reykræsta bílskúrinn og náði reykurinn ekki inn í íbúðarhúsið sjálft en töluverðar skemmdir hafa orðið á því dóti sem í skúrnum var vegna elds og reyks. Ljóst er að skjót viðbrögð Slökkviliðsins og þeirra sem urðu eldsins varir hafa bjargað miklu, en ekki hefði mátt líða mikið lengri tími þar til skúrinn hefði orðið alelda þar sem hann var lokaður og orðinn fullur af reyk þegar slökkviliðið kom, en bílskúrinn er bæði sambyggður öðrum bílskúr "aðskildir með steyptum vegg", auk þess að vera sambyggður húsinu en ekki er innangengt úr skúrnum í húsið. Allt lítur út fyrir að eldsupptök hafið verið í ísskáp sem staðsettur var í miðjum skúrnum. (Myndir frá vettvangi má sjá hér)
|



Slökkviliðið var ræst út af Neyðarlínunni kl: 14.42 í dag þar sem tilkynnt var að kviknað væri í bílskúr við Búhamar 36.