| Hrós ársins 2009 |
|
|
|
| Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson |
| Fimmtudagur, 07. janúar 2010 21:32 |
|
Slökkvilið Vestmannaeyja ásamt þjóðhátíðarnefnd ÍBV fá titilinn "Eyjamaður ársins" að þessu sinni en í umsögninni segir meðal annars "mikið hafi mætt á liðinu á undanförnum árum þar sem menn eru að leggja sig í hættu við erfiðar aðstæður" og "það væri hverju bæjarfélagi mikill sómi af því góða slökkviliði sem við Eyjamenn göngum að sem gefnum hlut". Með þessu hrósi er Slökkviliði Vestmannaeyja mikill sómi sýndur og þökkum við kærlega fyrir okkur, en það gleymist því miður allt of oft mikilvægi þess að eiga vel mannað og tækjum búiið slökkvilið. |



Þessa fyrirsögn er að finna á forsíðu Stofna, sem er blað Eyverja félags ungra sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum en þar eru þeir að veita hrós þeim einstaklingum og fyrirtækjum sem þeim finnst hafa staðið sig vel á liðnu ári.