| Útkall-Barnaskólinn |
|
|
|
| Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson |
| Föstudagur, 01. janúar 2010 19:34 |
|
Þegar slökkviliðið kom á vettvang flæddi vatnið niður með loftræstitúðum í sameiginlegri aðstöðu kennara á annari hæð og áfram niður stigaganginn.
Í vinnuaðstöðu kennara var ökkladjúpt vatn yfir öllu gólfinu og einnig í loftræstirými á þriðju hæð þaðan sem vatnsflóðið átti upptök sín, en svo virðist sem hitaeliment í loftræstisamstæðunni hafi frostsprungið með þessum afleiðingum. Vel gekk að hreinsa upp vatnið en meðal annars þurfti að hreinsa burtu einangrun á loftaplötu í köldu rými inn af loftræstirýminu þar sem mikið vatn hafði safnast undir og lak svo þaðan niður í vinnuaðstöðu kennara. Voru starfsmenn skólans meðal annars ræstir út og fóru í það verk ásamt slökkviliðsmönnum að forða tölvubúnaði, bókum og húsgögnum frá frekari skemmdum en ljóst er að töluvert tjón hefur orðið m.a. á húsgögnum og öðrum innanstokksmunum.(Myndin tengist fréttinni ekki beint)(Myndir frá útkallinu)
|



Slökkviliðið var ræst út rúmlega hálf fimm í dag, en tilkynnt hafði verið um mikin vatnsleka í Barnaskólanum.