| Útkall-Brekastígur 28 |
|
|
|
| Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson |
| Föstudagur, 18. desember 2009 05:04 |
|
Hafði húsráðandi sem býr á efri hæð hússins sem er þriggja hæða forskalað timburhús vaknað við mikla reykjarlykt og reyk sem barst frá kjallaraíbúð hússins. Þegar slökkviliðið kom á staðin var lögreglan þegar mætt með sjúkrabíl en engin eldur reyndist vera laus þrátt fyrir að mikill reykur væri í kjallaranum og hafði hann borist upp á efri hæðina en timburgólf er á milli hæða. Voru húsráðandi og íbúi í kjallara þegar komnir út og amaði ekkert að þeim en reykræsta þurfti báðar hæðir hússins. Orsök "eldsupptakanna" var sú að húsráðandi í kjallara hafði ætlað að fá sér í svangin em sofnað út frá pönnu á eldavél með þeim afleiðingum að maturinn brann við og íbúðin fylltist af reyk. Er nokkuð ljóst að ef húráðandi á efri hæðinni hefði ekki vaknað við reykin hefði getað farið mjög illa en aðeins einn reykskynjari var á rishæðinni í húsinu og var hann óvirkur. |



Slökkviliðið var ræst út kl: 04.20 í morgun þegar Neyðarlínan tilkynnti um mikin reyk í kjallaraíbúð við Brekastíg 28.