Þú ert hér: Heim Fréttir Útkall-Hangikjöt
Útkall-Hangikjöt Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson   
Fimmtudagur, 10. desember 2009 20:09

Slökkviliðið var ræst út af Neyðarlínunni laust fyrir klukkan hálf átta í kvöld þar sem tikynnt var um mikin reyk frá húsi við Hrauntún.

Var lögreglan þegar komin á staðinn en fljótlega eftir að.....

fyrstu slökkvibílarnir lögðu af stað barst hins vegar afboðun um frekari aðstoð frá Neyðarlínunni.

Var þá komin útskýring á reyknum, en húsráðandi hafði verið að reykja kjöt í litlum reykofni úti á lóð á bak við húsið og fór reykingin eitthvað úr böndunum með þeim afleiðingum að reykurinn varð töluvert meiri en til var ætlast.

Að sögn lögreglu var hins vegar ekki nein hætta á ferðum.