Þú ert hér: Heim Fréttir Í tilefni komu jólanna
Í tilefni komu jólanna Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson   
Laugardagur, 05. desember 2009 23:20

Nú gengur sá tími í hönd þegar nokun á kertaskreytingum og ljósaseríum er hvað mest á heimilum landsmanna og samfara því eykst hættan á eldsvoðum og alvarlegum slysum ef ekki er rétt með farið.

Eftirfarandi fróðleiksmolar um kertaskreytingar og ljósaseríur eru teknir af heimasíðu Brunamálastofnunnar(www.brunamal.is).

 

 

MUNIÐ EFTIR REYKSKYNJURUNUM, SLÖKKVITÆKINU OG ELDVARNATEPPINU

KERTASKREYTINGAR

Ýmislegt þarf að hafa í huga þegar kertaskreytingar eru notaðar en þær geta verið þannig gerðar að auðveldlega kvikni í þeim. Gangið úr skugga um að undirlag kerta og kertaskreytinga sé stöðugt og óbrennanlegt. Hafið ekki brennanlegt skraut s.s. borða eða greinar á kertunum. Til eru eldtefjandi efni sem fást á úðabrúsum í blómabúðum og víðar sem hægt er að úða yfir kertaskreytingar. Gott er að nota álhulstur á neðri endann á kertinu. Einnig eru til sjálfslökkvandi kerti. Aldrei má þó treysta á að slíkt komi í veg fyrir bruna. Gott er að nota sjálfvirkan kertaslökkvara eins og sést á myndinni hér til hliðar en það kemur samt ekki í staðinn fyrir árvekni þegar um lifandi eld er að ræða.

Fyrir börn hefur kertaljós sérstakt aðdráttarafl. Brýnið fyrir börnum að fara ætíð varlega með eld og gætið þess að börn leiki sér ekki nálægt logandi kertum. Forðist að hafa kerti í dragsúgi og að þau séu nálægt opnum glugga þar sem vindur getur sveiflað gluggatjöldum í kertalogann. Setjið ekki kerti þannig að kettir eða hundar geta velt þeim. Yfirgefið aldrei vistarveru þar sem kertaljós logar.

 
Lifandi jólatré.Þegar komið er heim með lifandi jólatréð er gott að skera neðan af stofninum og láta það standa í vatni. Lifandi tré er best að geyma úti þangað til þau eru sett upp. Þannig helst rakinn betur í trénu og það verður ekki eins fljótt eldfimt. Notið jólatrésfót sem gerður fyrir að vatn standi í honum og fyllið á vatnsmagnið eftir þörfum.

 

 Munið að slökkva á kertunum áður en farið er að sofa.

 

 Sprittkerti(teljós) eiga alltaf að standa á óbrennanlegri undirstöðu eins og önnur kerti. Ekki ætti að setja sprittkerti ofan í mikið lokuð ílát eða inn í kertahús því vaxið getur farið að sjóða með þeim afleiðingum að logandi vax skvettist upp úr kertinu. Þar sem teljós er notað þarf að gæta varúðar við að slökkva á því. Ef það flöktir þá má aldrei hella vatni á það því að við það að skvetta á það vatni verður mikill blossi. Betra er að kæfa eldinn t.d. með kertaslökkvara.

 Kerti brenna mishratt og því þarf alltaf að fylgjast vel með kertum sem logar á og slökkva á þeim þegar þau hafa brunnið hæfilega langt niður.

 Útikertiþarf að staðsetja þannig að eldur geti ekki borist í palla eða gróður. Kerti sem rignir ofan í eru varhugaverð. Þegar vatnið lendir á heitu vaxinu skvettist það út um allt. Staðsetjið útikerti þannig að þau valdi ekki hættu t.d. að börn rekist í þau eða yfirhafnir fullorðinna, s.s. kápur og frakkar sláist ekki í loga þeirra.

 Olíulampar þurfa að vera þannig staðsettir að þeir geti ekki oltið og að þeir séu ekki nálægt einhverju sem getur brunnið.

 

LJÓS OG RAFMAGNSTÆKI


 Gætið þess að ljósaperur þurfa lágmarksfjarlægð frá lampaskermum sem miðast við styrk perunnar. Aldrei má skreyta ljósaperur með brennanlegum efnum. Sérstaklega eru halógenkastarar hættulegir í þessu samhengi, en alltaf ber að virða þær lágmarksfjarlægðir sem gefnar eru upp á slíkum kösturum. Þessi fjarlægð ætti aldrei að vera minna en 50 cm.

 Ljósaseríur gefa einnig frá sér hita sem þarf að komast frá þeim og því má ekki setja þær þannig að kviknað geti í út frá þeim. Seríum sem eru skemmdar á að láta fagmann yfirfara eða einfaldlega henda þeim. Sumar seríur eru þannig að þegar slokknar á einni peru þá hitna hinar perurnar meira og þegar nokkrar perur eru farnar er hitinn á þeim perum sem eftir eru orðinn verulegur og þá getur verið stutt í að kvikni í

 Sumar rafmagnsseríur eru þannig að þó að ein pera verði eyðileggist þá helst samt kveikt á seríunni. Sumar seríur eru þannig að við þetta verður meiri straumur á perunum sem eftir eru og þær hitna meira. Ef serían er nálægt þurri jólaskreytingu þá getur það leitt til þess að skreyting sem var hættulaus fyrir jól er allt í einu orðin hættuleg eftir jól. Sama getur átt við um kertaljós þar sem mikilvægt er að huga að því að kerti nái vel upp fyrir skreytinguna þar sem stuttur kertastubbur getur orsakað bruna.

 Hendum út ónýtum rafmagnsseríum og minnkum hættuna á eldsvoðum.