Þú ert hér: Heim Fréttir Eldvarnavikan 2009
Eldvarnavikan 2009 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson   
Þriðjudagur, 01. desember 2009 21:55

Eldvarnavikan, sem er árlegt eldvarnaátak Landssambands slökkviliðs og sjúkraflutningamanna var haldin vikuna 20-27. nóvember s.l.

Í þessu átaki eru öll átta ára börn á landinu ýmist heimsótt í skólana eða þau koma í heimsókn á slökkvistöðina og fá þar fræðslu um brunavarnir á heimilum og þær hættur sem ber að varast þegar eldur er annars vegar.

 

Öll fá börnin gefins bók um slökkviálfana Loga og Glóð og illvirkjan Brennu-Varg en bókin heitir einmitt Brennu-Vargur og er spennusaga en í henni eru líka góðir fróðleiksmolar sem börnin geta notað til að leysa Eldvarnagetraunina sem er aftast í bókinni og verða veglegir vinningar dregnir úr réttum lausnum, en vinningarnir verða afhentir á 112-daginn þann 11. febrúar.

Tveir hópar af hressum krökkum komu í heimsókn til okkar á slökkvistöðina ásamt kennurum sínum og fengu þar sína fræðslu hjá slökkviliðsstjóra og aðst.slökkviliðsstjóra sem sýndu þeim í leiðinni tæki og tól liðsins.(Myndir frá heimsóknunum)