| Logi og Glóð 2009 |
|
|
|
| Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson |
| Fimmtudagur, 19. nóvember 2009 19:33 |
|
Verkefnið er samstarfsverkefni slökkviliðanna og Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands þar sem slökkviálfarnir Logi og Glóð kenna börnunum hvernig umgangast á eld í máli og myndum.
Þegar Logi, Glóð og slökkviliðsmennirnir heimsækja leikskólana fá krakkarnir fallega möppu sem heitir Slökkviliðið mitt. Í henni eru meðal annars þrautir og verkefni og sérstakur reitur þar sem börnin geta sett mynd af sér með slökkviliðshjálm. Á bakhliðinni eru áríðandi skilaboð til foreldranna. Krakkarnir taka möppuna því með sér heim og sýna pabba og mömmu. Þau fá líka bækling með sér heim þar sem helstu atriði eldvarna eru útskýrð. Síðast en ekki síst fær hvert barn áritað viðurkenningarskjal þar sem slökkviliðsstjóri býður það velkomið í hóp aðstoðarmanna slökkviliðsins. |



Slökkviliðið heimsótti nú á dögunum leikskólana Kirkjugerði og Sóla þar sem elstu börnin voru frædd um eldhættur og brunavarnir á heimilum.