Þú ert hér: Heim Fréttir Rýkur enn úr rústunum
Rýkur enn úr rústunum Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson   
Laugardagur, 17. október 2009 13:42

Ennþá lifir í glæðum í rústum Lifrarsamlagsins sem brann aðfaranótt fimmtudagsins og er slökkviliðið búið að fara þrisvar sinnum á staðinn síðan að "formlegu" slökkvistarfi lauk seinnipartinn á fimmtudaginn, nú síðast í morgun.

Erfiðlega hefur gengið að komast að glæðunum sem eru í þykkri torfeinangrun í milliveggjum og útveggjum hússins og ljóst er að síðustu glæður verða ekki slökktar fyrr en búið verður að hreinsa allt brak úr rústunum og rífa niður alla forskalningu og einangrun af útveggjunum sem ennþá rýkur úr.