| Eldvarnaeftirlitsmaður ll |
|
|
|
| Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson |
| Miðvikudagur, 14. október 2009 18:55 |
|
Námskeiðið var haldið í kennsluhúsnæði skólans að Ásbrú í Reykjanesbæ en húsnæðið er staðsett á gamla varnarsvæðinu við Keflavíkurflugöll og var Pétur Valdimarsson frá Brunamálastofnun kennari.
Á námskeiðinu var farið í flesta þá þætti sem tengjast eldvarnaeftirliti með sérstakri áherslu á yfirferð teikninga, lokaúttektir á byggingum og skýrslugerð en í verklega hlutanum var farið í skoðunarferðir m.a. í Turninn í Kópavogi, íþróttaakademíuna í Reykjanesbæ og Krónuna og Intersport í Lindum þar sem gerðar voru úttektir og menn látnir finna það sem að var í þessum byggingum en það var meðal annars hluti af verklega prófinu.
Eftir námskeiðið var nemendum boðið í heimsókn á slökkvistöðina í Grindavík þar sem boðið var upp á kaffi en Ási slökkviliðsstjóri og Kristján varðstjóri sýndu svo mönnum stöðina og bíla/tækjakost liðsins. Það er ekki laust við að greinarhöfundur hafi orðið svolítið öfundsjúkur þegar hann skoðaði stöðina en allur aðbúnaður og tækjakostur liðsins er til fyrirmyndar og til stendur að bæta hann enn frekar.
|



Brunamálaskólinn hélt námskeiðið Eldvarnaeftirlitsmaður ll dagana 5-8 október s.l.