Þú ert hér: Heim Fréttir Síðasta helgarvaktin á þessu sumri
Síðasta helgarvaktin á þessu sumri Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson   
Laugardagur, 26. september 2009 19:21

Síðasta helgarvaktin á þessu sumri var haldin í morgun.

 

Var morguninn notaður til þess að yfirfara tækin og dytta að ýmsu smálegu en meðal annars var skipt um "logo" á bílunum en Slökkvilið Vestmannaeyja er  að skipta út merki liðsins og munu breytingarnar sjást  á næstu dögum og vikum  en verið er  að hanna nýtt útlit á heimasíðuna með nýja logoinu. Vetraræfingar munu svo hefjast bráðlega og verður það tilkynnt hér á heimasíðunni ásamt því að menn munu fá vaktaplanið sent heim í pósti.

 

 

Það er annars að frétta að Ásinn(dælubíll 1) er kominn í gagnið aftur eftir að viðgerð á dælunni lauk núna fyrir helgi, en fyrir nokkrum mánuðum fóru að heyrast óeðlileg hljóð frá henni(leguhljóð), og var ákveðið að fá nýjar legur, fóðringar og tilheyrandi .

 

Þegar varahlutirnir svo loksins komu og dælan var rifin í sundur komu í ljós miklu meiri skemmdir en reiknað hafði verið með,  svo að skipta þurfti um alla innviði dælunnar, og aftur leið langur tími þar til allir varahlutir skiluðu sér, en að lokum gekk allt upp og dælan farin að virka eins og ný.

 

Það vildi okkur til happs að engin stórútköll voru þann tíma sem bíllinn var úr leik en við höfðum gott bakland í starfsmönnum Flugstoða sem settir voru á útkallslista og hefðu komið okkur til aðstoðar með flugvallarbílinn ef til þess hefði komið.(Takk fyrir það Flugstoðamenn)

(Myndir af dæluviðgerð og nýja merkinu á bílunum)