Þú ert hér: Heim Fréttir Útkall HS.veitur
Útkall HS.veitur Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson   
Þriðjudagur, 11. ágúst 2009 18:22

Eldur kom upp í húsnæði Hitaveitu suðurnesja "HS.veitur" seinnipartinn í dag.

Verið var að keyra ljósavélar þegar hiti frá einni pústgreininni kveikti í loftaklæðningu fyrir ofan eina vélina.

Náðu starfsmenn HS að slökkva eldinn en fundu alltaf reykjarlykt  sem þeim tókst ekki að komast fyrir og varð úr að þrír slökkviliðsmenn fóru á staðinn til að athuga málið.

 

Þegar að var komið og búið var að hreinsa einangrun í burtu reyndist vera töluverð glóð í loftbitum og þaki fyrir ofan pústgreinina og hafði verið búin að krauma í u.þ.b tvo tíma áður en slökkviliðið kom á vettvang.

Það er því nokkuð ljóst að mun verr hefði getað farið og að ræsa hefði átt út slökkviliðið strax í byrjun enda mikið í húfi fyrir bæjarfélagið ef alvarlegt tjón hefði orðið þar sem bærinn er keyrður á ljósavélum núna vegna bilunnar í kerfinu uppi á landi