| Útkall-vinnuslys |
|
|
|
| Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson |
| Laugardagur, 18. júlí 2009 22:40 |
|
Þegar slökkviliðið kom á staðinn skömmu síðar var búið að losa manninn undan farginu með aðstoð annars lyftara og koma honum á sjúkrabörur og var honum komið undir læknishendur á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja.
Slökkviliðið þurfti því ekki að beita neinum tækjum í þessu slysi en hins vegar þurfti að þrífa upp talsvert af glussa sem lekið hafði af lyftaranum og voru notaðar uppsogsmottur til að þurrka upp lekann en síðan var svæðið þrifið með hreinsiefnum.
Slysið virðist hafa orðið með þeim hætti að maðurinn hafi einhverra hluta vegna misst stjórn á lyftaranum eða hlekkst á þegar hann kom niður bratta brekku við Vinnslustöðina með þeim afleiðingum að lyftarinn valt á aðra hliðina en við það lenti ökumaðurinn með annann fótinn undir honum.
Virðist ökumaðurinn hafa sloppið ótrúlega vel miðað við aðstæður en lyftarinn lá ofan á ristinni á öðrum fætinum á honum og hélt honum því föstum. Að sögn lögreglu virtist sem fóturinn á honum væri nokkuð illa farinn en að öðru leiti bar hann sig vel. Ekki er vitað nánar um líðan mannsins eða tildrög slyssins þegar þetta er skrifað en lögreglan á eftir að ljúka skýrslutökum af ökumanni og hugsanlegum vitnum.(myndir)
|



Klippu og eiturefnahópur slökkviliðsins var kallaður út kl: 20.34 í kvöld þegar Neyðarlínan tilkynnti að maður sæti fastur undir lyftara við Vinnslustöðina í Vestmannaeyjum.