Þú ert hér: Heim Fréttir Helgarvakt 6
Helgarvakt 6 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson   
Laugardagur, 18. júlí 2009 22:24

Fórum í eldvarnaeftirlit á helgarvaktinni í morgun í Hótel Eyjar.

Hafði slökkviliðsstjóri gert þó nokkrar athugasemdir við húsnæðið í fyrri skoðunum en síðan þá höfðu verið gerðar nokkrar úrbætur m.a. settir upp fellistigar sem við prófuðum og virkuðu þeir allir eðlilega.

 

Þó eru ennþá nokkrar úrbætur sem þarf að gera á húsnæðinu og mun slökkviliðsstjóri koma þeim á framfæri við eiganda hússins eftir helgi, m.a. þarf að bæta aðgengi að fellistigunum og gera fólki auðveldara að komast út á þá.

 

Eftir þessa skoðun var komið við í bátaskýli Björgunarfélagsins þar sem menn voru í óða önn við að undirbúa flugeldasýninguna sem verður á þjóðhátíðinni og í leiðinni gripu menn tækifærið og spreyttu sig á klifurveggnum en fóru þó bara hæfilega hátt vegna þess að öryggislínurnar vantaði.(myndir)