Þú ert hér: Heim Fréttir Nýr búnaður
Nýr búnaður Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Friðrik Páll Arnfinnsson   
Föstudagur, 17. júlí 2009 20:39

Sumardaginn fyrsta s.l. fékk Slökkvilið Vestmannaeyja ásamt fleiri félögum afhentan styrk frá Alþýðubandalagi Vestmannaeyja að upphæð kr. 300.000 (sjá frétt) og var ákveðið að verja peningunum í að efla og bæta tækjakost liðsins með kaupum á keðjusög og bakbretti.

 

 

Keðjusögin kemur frá Garðheimum og er af gerðinni Stihl MS-460R "rescue" en hún er sérhönnuð fyrir slökkvilið og aðra björgunaraðila, en slökkviliðið í Virginia Beach í Bandaríkjunum kom meðal annars að hönnuninni.

 

Sögin er mjög öflug eða 6.hestöfl/4,5 kw og kemur sér sérstaklega vel þegar rjúfa þarf göt í þak- og veggklæðningar en með karbít(carbide) keðjunni má fara í gegnum  tré, málma og ýmis önnur efni.

 

Bakbrettið með höfuðpúðum og ólum fengum við svo hjá Ólafi Gíslasyni "Eldvarnamiðstöðinni" en með kaupum á því vorum við  fyrst og fremst að hugsa um öryggi okkar liðsmanna, þ.e. ef eitthvað óhapp verður í útkalli að geta brugðist strax við því með réttum búnaði þar sem að sjúkrabíll mætir sjaldnast í útköll með okkur.  Einnig nýtist brettið við önnur björgunarstörf sem slökkviliðið kemur að þar sem flytja þarf slasaða af vettvangi s.s við bílslys og fleira og er þar viðbót við þann búnað sem til er fyrir.

 

Að lokum viljum við svo þakka Alþýðubandalagi Vestmannaeyja enn og aftur fyrir höfðinglega gjöf

(Fleiri myndir af búnaðinum má sjá hér)