Þú ert hér: Heim Ársskýrslur Ársskýrsla 2002
Ársskýrsla 2002 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Slökkvilið Vestmannaeyja var kallað út í 14 skipti á árinu 2002.   Í fjórum tilfellum var kallað út í íbúðarhús og jafn oft vegna elds í skipum og bátum.  Þrisvar var kallað út vegna elds í ruslagámum og hreinlætisaðstöðu. Einu sinni var kallað út vegna elds í vörubifreið, og eins varð í eitt skiptið eldur laus í bílskúr, og í einu tilfelli var slökkviliðið kallað út vegna gruns um eld í gistiheimili.

 

Æfingar liðsins á árinu voru 29 auk þess sem liðið tók þátt í björgunaræfingunni Samvörður 2002.

Slökkviliðið hefur hjálpað við slökkviæfingar starfsfólks hjá 1. stofnun, auk þess sem æfingar um borð í skipum með áhöfn þeirra hafa verið 2.  Eins og undanfarin ár tók Slökkvilið Vestmannaeyja þátt í Eldvarnaviku Landssambands slökkviliðs og sjúkraflutningsmanna í byrjun desember og heimsóttu þá slökkviliðsmenn öll 8 ára börn í skólana með gjafir og verkefni tengd brunavörnum.

 

Þann 23. nóvember komu til Eyja starfsmenn Brunamálastofnunar með búnað til æfinga í viðbrögðum tengdum efnaslysum. Haldnir voru fyrilestrar um efnið og endað með verklegri æfingu.

 

Eins og venjulega heimsóttu börn bæði úr grunnskólum og leikskólum slökkvistöðina, auk þess sem D vakt slökkviliðs Keflavíkurflugvallar kom í heimsókn þann 10. mai.

 

Vestmannaeyjum 2. janúar 2003

Elías Baldvinsson slökkviliðsstjóri.