| Ársskýrsla 2011 |
|
|
|
|
Ársskýrsla 2011 Slökkvilið Vestmannaeyja var kallað út af neyðarlínunni 15 sinnum á árinu 2011 og í flestum tilvikum var um minnháttar tjón að ræða. Þó var talsvert mikið tjón í bruna þegar eldri hluti Hótel Eyja (Drífandi) brann. Af þessum útköllum var fjórum sinnum kallað út vegna sinuelda, þrisvar vegna vatnsleka, tvisvar sinnum vegna vinnuslysa, tvisvar sinnum var um eiturefnaslys og þrisvar sinnum var um eld í heimahúsi að ræða. Þá heimsóttum við mörg fyrirtæki og stofnanir, bæði til að kynna okkur staðhætti og einnig vorum við með eldvarnakynningu fyrir starfsfólk. Þá var farið um borð í Herjólf og haldin æfing með áhöfninni. Æfingar hjá liðinu voru 28. á árinu Haldið var þing slökkviliðsstjóra hér í Eyjum á haustdögum. Á þingið mættu 25. Slökkviliðs- og varaslökkviliðsstjórar víðsvegar af landinu og báru saman bækur sínar. Einnig standa slökkviliðsmenn vaktir þegar skip frá olíufélugum með bensínfarm losa hér í Eyjum og var það í 10 skipti á árinu. Við hjá eldvarnaeftirlitinu sjáum einnig um umsagnir til sýslumanns fyrir gististaði, veitingastaði og samkomustaði, þær umsagnir voru 48. á árinu. Einnig voru gerðar 7 brunavarnaskýrslur fyrir stærri byggingar. Slökkviliðsmenn sátu kynningarfund með neyðarlínunni og einnig tóku liðsmenn þátt í námskeiðum á vegum Brunamálaskólanns Eins og undanfarin ár tók Slökkvilið Vestmannaeyja þátt í eldvarnaviku Landssambands slökkviliðs og sjúkraflutningamanna í byrjun desember. Þá heimsóttu okkur rúmlega 55 grunnskólabörn á slökkvistöðina þar sem farið var yfir eldvarnir á heimilum og börnin skoðuðu tæki og tól. Þá voru kennarar látnir slökkva eld með eldvarnateppi og síðan var öllum keyrt á slökkvibílum aftur í skólann. Mikið var af heimsóknum á slökkvistöðina á árinu bæði komu gestir af fastalandinu og einnig heimafólk til að skoða okkar búnað og kynnast okkar starfi. Vestmannaeyjum 10. Jan 2012.
Ragnar Þór Baldvinsson slökkviliðsstjóri |


